Um Mótel Best

Hótel Vogar er góður valmöguleiki, jafnt fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn. Hótel Vogar er staðsett í Vogum á Vatnsleysuströnd og býður fram mjög góða aðstöðu á hóflegu verði. Mótelið er í 24 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík og 14 mínútna akstur er að flugvellinum, sem gerir mótelið að góðum viðkomustað ferðalanga sem hyggja á flug frá landinu jafnt sem þeirra sem vilja gefa sér tíma til að kynnast fegurð Suðurnesja og heimsækja Bláa Lónið, sem er í 12 mínútna fjarlægð, sé ferðast með bíl.

Við bjóðum upp á:

  • Aðlaðandi og snyrtileg herbergi.
  • Hóflega verðlagningu
  • Sjónvarp með gervihnattarásum í flestum herbergjum.
  • Sérsniðin gluggatjöld til að tryggja góðan nætursvefn, jafnvel á björtum sumarnóttum.
  • Þykkir veggir á milli herbergja.



Hotel Vogar, Stapavegur 7, 190 Vogar, Iceland - Tel: +354 866 4664 - Fax: +354 424 6735 - hotelvogar@simnet.is